Mía Magic

Míu bangsi | Mia Magic

Míu bangsi | Mia Magic

Verð 5.490 ISK
Verð Verð með afslætti 5.490 ISK
Afsláttur Vara væntanleg
Virðisaukaskattur innifalinn

Míu bangsinn er úr 100% bómull.
Handþvottur og leggja til þerris.
Roðinn í kinnum Míu er handmálaður á hvert eintak.

Mía er bangsi sem hefur meiningu. Mía er karakter úr bókinni Mía fær lyfjabrunn sem þær stöllur Þórunn Eva og Bergrún Íris gerðu saman. Þórunn Eva skrifaði og Bergrún Íris myndskreytti. 

Það er okkur heiður að fá að setja Míu bangsann í sölu. Mía er ótrúlega vinsæl bæði meðal barna og fullorðinna. 

Mia Magic er góðgerðarfélag sem einbeitir sér að því að gleðja langveik börn og fjölskyldur þeirra. Mia Magic heiðrar einnig heilbrigðisstarfsfólk sem kemur að því að sinna langveikum börnum á einn eða annan hátt. Bókin um Míu var upphafið af þessu fallega félagi og var bangsi alltaf hugmynd hjá Þórunni Evu um leið og hún sá hve vel bókin náði til allra. 

Mía á eftir að hjálpa svo mörgum með nærveru sinni. Mía á afmæli 15. september. Hún elskar knús og að hjálpa öðrum. Vissu þið að Mía þýðir "mín"?

Sem er ótrúlega skemmtilegt því allir geta eignast sína eigin Míu <3 



Sendingarmáti

Frí heimsending ef verslað er fyrir 10.000kr eða meira.

Afhendingartími er alla jafna 1-3 virkir dagar.

Vöruskil

Skilafrestur er 14 dagar frá kaupum. Vöru fæst aðeins skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Tilkynna skal vöruskil á skjaldbaka@skjaldbaka.is. Boðið er upp á endurgreiðslu eða vöruskipti. Endurgreiðsla er gerð í sama formi og greitt var fyrir vöruna. Aðeins er endurgreitt á þann aðila sem greiddi fyrir vöruna upphaflega, sá sem fær vöru að gjöf getur því aðeins krafist vöruskipta en ekki endurgreiðslu. Athugið að kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Hulunni. Heimsendingargjald fæst ekki endurgreitt. Útsöluvörum er ekki hægt að skila né skipta.

Vinsamlegast athugið að endurgreiðsla er eingöngu í boði innan 14 daga frá kaupum. Vörur sem eru með skiptimiða (gjafir) er hægt að skila innan skilafrests sem gefinn er upp á skiptimiða og er þá boðið upp á vöruskipti eða inneignarnótu. 

Sjá allar upplýsingar